04.03.1949
Neðri deild: 75. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1559 í B-deild Alþingistíðinda. (2260)
54. mál, sjúkrahús o.fl.
Jón Sigurðsson:
Ég skil vel afstöðu n., að hún lítur svo á, að ekki sé fjármagn fyrir hendi né útlit á, að svo verði, til stórátaka í þessum málum, þannig að öll sjúkrahúsin séu tekin undir eitt. En þessi mælikvarði er óforsvaranlegur: Hvergi er þetta betur sett, en í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Sauðárkrókur hefur mun lakari aðstæður, en Keflavík. En það verða sömu reglur að gilda fyrir þá staði, sem hafa svipaðar aðstæður. En þó að ég sé ekki alveg ánægður með brtt. hv. þm. S-M., þá mun ég greiða henni atkv. Það er meira réttlæti.