11.11.1948
Efri deild: 11. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (2314)

60. mál, útflutningur og innflutningur á íslenzkum og erlendum gjaldeyri

Brynjólfur Bjarnason:

Hæstv. ráðh. hefur gefið þær upplýsingar, að á tímabilinu frá 15. apríl til 1. okt. á þessu ári hafi 2 þúsund manns verið leyft að fara úr landi án gjaldeyris. Ég vil í þessu sambandi spyrja hæstv. ráðh.: Hvernig hafa, þá þessir menn fengið gjaldeyri, og hvernig hafa þeir gert grein fyrir því, að þeir hafi aflað hans á löglegan hátt?