11.11.1948
Efri deild: 11. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1584 í B-deild Alþingistíðinda. (2316)

60. mál, útflutningur og innflutningur á íslenzkum og erlendum gjaldeyri

Forseti (BSt):

Þá verður aftur horfið að umr. um 2. mál á dagskránni. Ég vil geta þess, að verði verulegar umr., verður umr. frestað, samkv. ósk hæstv. viðskmrh., en þeim verður haldið áfram um sinn, ef hægt væri að ljúka málinu.