23.04.1949
Neðri deild: 91. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1611 í B-deild Alþingistíðinda. (2355)

60. mál, útflutningur og innflutningur á íslenzkum og erlendum gjaldeyri

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Mér hefur verið sagt, að það hafi verið lýst eftir mér út af þessu gjaldeyrisfrv. Mér virðist, ef það hefði átt eitthvað að fara að athuga í því frekar, — en ég hef ekki lagt neina sérstaka áherzlu á það, en tek þó ekki af um það, að eitthvað megi þar athuga, — þá megi gera það milli 2. og 3. umr. og þurfi ekki að taka málið út af dagskrá nú þess vegna.