03.05.1949
Efri deild: 94. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1631 í B-deild Alþingistíðinda. (2417)

204. mál, einkasala á tóbaki

Forseti (BSt):

Ég vil ekki blanda mér í umr. héðan úr forsetastóli, en ég sé ekki annað, ef till. verður samþ., en prenta þurfi frv. áður en næsta umr. fer fram, og verða þm. að meta það, hvort þeir meta hana svo mikils. Væri betra, ef hv. 6. landsk. vildi taka hana aftur til 3. umr., og mætti þá prenta frv. áður en það færi til Nd.