25.04.1949
Neðri deild: 92. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1638 í B-deild Alþingistíðinda. (2449)

122. mál, sala Hafnarness

Frsm. (Sigurður Guðnason):

Herra forseti. Þetta frv. hefur legið hjá landbn., og eins og nál. ber með sér, er n. öll sammála því að mæla með því, að frv. þetta verði samþ. með aðeins smávægilegri breyt.; þar sem n. þótti eðlilegt, að stæði kaupverð, en ekki „kostnaðarverð“. Landbn. er sammála um að mæla með því, að þetta frv. nái fram að ganga, og óskar eftir því, að því verði vísað til 3. umr.