25.04.1949
Neðri deild: 92. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1639 í B-deild Alþingistíðinda. (2450)

122. mál, sala Hafnarness

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hv. landbn. fyrir að hafa afgr. þetta mál og vil taka fram, að ég hef ekkert að athuga við þá breyt., sem hv. n. flytur till. um. Ég sé ekki, að þar sé um neina efnisbreyt. að ræða, og má vera, að það orðalag sé ótvíræðara, sem hv. n. stingur upp á, heldur en hitt, sem í frvgr. er.