22.04.1949
Neðri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1643 í B-deild Alþingistíðinda. (2477)

164. mál, orkuver og orkuveitur

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vildi heldur fá þessar upplýsingar við 2. umr. og ræða þær nokkuð hér í hv. d., og auk þess sé ég ekki, hvað það greiðir fyrir málinu, þó að það sé ekki gert, þar sem d. er nú ekki ályktunarhæf, eða var það ekki a.m.k. við næsta mál hér á undan. Ég vil því bera fram þá ósk, að hæstv. ráðh. verði viðstaddur umr. um þetta mál.