09.11.1948
Efri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (25)

26. mál, happadrættislán ríkissjóðs

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Mér datt í hug, að aftan við 1. gr. mætti bæta: „eða útsvari af eign“. Mér skilst, að það mundi skera úr um þetta atriði, sem hv. 1. þm. Reykv. réttilega benti á. Það má segja, eins og hv. 1. þm. N-M. sagði, að þetta sé ekki alveg vafalaust.