05.04.1949
Neðri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (2568)
100. mál, jeppabifreiðar
Skúli Guðmundsson:
Út af þeim umr., sem fram hafa farið, vil ég taka fram, að mér finnst það eðlilegt, að bílaúthlutunin sé í höndum félagssamtaka bænda. Hins vegar tel ég óþarft, að Alþ. kjósi mann í n. Það verður ekki um það deilt, að stjórnir búnaðarfélaganna eru kunnugri á hverjum stað, en þó að úthlutunarnefnd yrði skipuð, sem sæti ætti hér í Rvík. Þess vegna sýnist mér það vera hyggilegra að fela búnaðarsamböndunum úthlutunina á félagasvæðunum.
Hv. 2. þm. Skagf. talaði um hlutkesti. Ég sé nú ekkert hneykslanlegt við það, hafi umsækjendur sömu skilyrði til að bera til að fá bílinn. Úrslit hlutkestisins munu vart verða verri, en þó að málinu yrði skotið til úrskurðar einhverrar yfirnefndar suður í Rvík.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta, en leyfi mér að vænta þess, að þetta verði athugað á milli umr.