22.04.1949
Efri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1686 í B-deild Alþingistíðinda. (2593)
100. mál, jeppabifreiðar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Það stendur hér í 1. gr. frv., að meðan innflutningur og gjaldeyrisviðskipti séu háð ákvörðunum ríkisvaldsins, þá ákveði ríkisstj. eða sá aðili, sem fari með þessi mál fyrir hennar hönd, tölu þeirra jeppabifreiða eða annarra slíkra bifreiða, sem heimilt er að flytja til landsins til landbúnaðarþarfa ár hvert. Mér skilst, að á meðan þessi gr. er höfð svona óákveðin, þá sé hægt að hafa framkvæmdina á þessu slíka, að þó að þetta sé samþ. svona, eins og gr. er, þá fái landbúnaðurinn ekki nema lítinn hluta af þessum bifreiðum, heldur sé það á valdi fjárhagsráðs að ákveða, að af þeim 3 millj., sem flytja á jeppabifreiðar inn fyrir, skuli t.d. aðeins fyrir 500 þús. vera fluttar inn bifreiðar til bænda. Ég hygg, að það sé ekki tryggt, að allar þessar bifreiðar fari til bænda, heldur sé þetta á valdi innflutningsyfirvaldanna. (Menntmrh.: Já, það er á valdi innflutningsyfirvaldanna.)
Í 2. gr. frv. þykir mér einkennilegt, hverjir eiga að greiða kostnað við störf n. Kostnaðurinn á að skiptast niður á þessa aðila, sem skipaðir eru í n., og það eru fyrst og fremst aðilar frá Búnaðarfélagi Íslands, sem er ríkisstofnun, síðan frá Stéttarsambandi bænda og loks einn skipaður af landbúnaðarnefndum Alþ. Hvar á að taka það fé, sem á að skipta sem kostnaði niður á fulltrúann frá landbn. Alþ.? Af alþingiskostnaði? Mér þykir þetta ákaflega einkennilega til tekið. Brtt. kom fram í hv. Nd. á þskj. 547 um, að kostnaður við störf n., ef einhver yrði, greiddist af þeim aðilum, sem fengju bifreiðarnar, en sú till. var felld þar. Mér finnst þetta ákaflega einkennileg ráðstöfun. Hvers vegna er ekki sagt beint, að þetta skuli greiðast úr ríkissjóði, því að Búnaðarfélagið sækir peninga sína þangað? Og ég heyri, að hv. þm. Dal. (ÞÞ) segir, að landbn. sæki líka sína peninga þangað. Annars þykir mér einkennilegt, að ekki skuli vera hægt að koma þessu öðru vísi fyrir. Það kostaði 36 þús. kr. að úthluta Renaultbílunum. Ef þeir hefðu verið fluttir inn eftir venjulegum reglum um innflutning, hefði viðskiptanefnd orðið að gera það án sérstakrar þóknunar. Og af þessum 36 þús. kr. fóru 16 þús. kr. til form. úthlutunarn., sem sagt er, að hafi byrjað á því að úthluta sjálfum sér bíl. — Það er ekki séð við öllum meinbugum á þessu máli, þó að þetta frv. verði samþ. Annars mun ég ekki setja fót fyrir þetta frv., þó að það sé gallað.