16.05.1949
Efri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1801 í B-deild Alþingistíðinda. (2790)
208. mál, áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vil bara benda á það, sem ég benti á við 1. umr. málsins og hef ekki enn fengið svör við. Ég spurði þá og bað n. að athuga, hvort hægt væri að svipta menn með lögum nú þeim rétti, sem þeir að lögum hafa haft fram til þess dags, sem þessi lög öðlast gildi, eða hvort hægt væri með öðrum orðum að láta lög þessi verka aftur fyrir sig. Ég held, að það sé óheiðarlegt að koma þannig aftan að mönnum, og þó að mér sé ljúft að afnema uppbæturnar með öllu, er þetta ákvæði svo andstyggilegt, að fara svona aftan að þjóðinni, að ég efast um, að ég geti greitt þessu frv. atkvæði, þó að ég vildi út af fyrir sig fá þetta afnumið, sem ætti að vera búið að gera fyrir löngu. Þessi stjórn var mynduð til þess að gera það, en þetta hefur verið vanrækt. Svona ólögum hefur verið beitt oft áður, og ég hef alltaf verið andstæður því að fara þannig að.