13.05.1949
Efri deild: 107. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1817 í B-deild Alþingistíðinda. (2840)
141. mál, iðnfræðsla
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég ætla aðeins að lýsa afstöðu minni til brtt. og málsins í heild. Ég tel brtt. við 22. gr. ekki vera til bóta og mun greiða atkvæði á móti henni. En ég hef verið samþykkur brtt. á þskj. 602, 2. tölul., og er skoðun mín á efni þeirrar till. óbreytt, og eigi einvörðungu efnislega, heldur og er ég sannfærður um, að hægt sé að framkvæma próf í verklegum efnum þannig, að hægt sé að ganga úr skugga um verkhæfni nemenda, án þess að þeir hafi stundað iðnnám hjá meistara. Ég tel margt vera til bóta og vil ekki tefja afgreiðslu málsins eða standa í vegi fyrir, að frv. fái afgreiðslu á þessu þ. Ég mun því greiða atkv. á móti till., en freista þess síðar, þegar sýnt verður um þingvilja, að leiðrétta þetta, svo að menn eigi þess kost, þó að þeir hafi ekki verið undir meistara, að sanna þekkingu sína. Afstaða mín hefur í engu breytzt, og ég vil ekki standa í vegi fyrir, að málið fái afgreiðslu á þessu þ., en ég óttast það, ef þessar brtt. verða samþ.