12.10.1948
Efri deild: 1. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (2869)

Kosning forseta og skrifara

Þessu næst voru kosnir skrifarar deildarinnar, að viðhafðri hlutfallskosningu. Fram komu tveir listar. Á A-lista var BK, á B-lista EE. Samkvæmt því lýsti forseti yfir, að kosnir væru án atkvgr.:

Eiríkur Einarsson, 2. þm. Árn., og

Björn Kristjánsson, þm. N-Þ.