28.10.1948
Sameinað þing: 9. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2069 í B-deild Alþingistíðinda. (2916)

Marshallaðstoðin

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að beina þeirri fyrirspurn til hv. síðasta ræðumanns, af því að það varðar fyrirtæki, sem hann er formaður fyrir, hvort rétt sé sú skýrsla, sem mér hefur borizt frá viðskiptanefnd, um, að þetta fyrirtæki hafi keypt blöð og tímarit án venjulegra leyfa af rússneska sendiráðinu hér í bæ. Mér finnst eðlilegt, að við fáum fullnægjandi svör frá formanni félagsins um þetta atriði.