14.03.1949
Neðri deild: 80. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2090 í B-deild Alþingistíðinda. (2957)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Mér finnst einkennilegt, þegar þessi þm. og flokksmenn hans eru að tala um æsing og óstyrkleika. Ég held, að óstyrkleikurinn og æsingin sé mest í þeirra hópi, því að bæði eru ræður þeirra lengri en mínar og auk þess er erfitt að fá hljóð fyrir fúkyrðum þeirra og frammígripum. Það var líkt þm. Siglf. að álykta eins og hann gerði af orðum mínum. Hann segir þvert á móti því, sem ég tók fram, að utanrrh. hafi verið kvaddur utan af Bandaríkjunum. Ég hélt, að ég hefði þó tekið það skýrt fram og það oftar en einu sinni í mínum ræðum, að utanrrh., ásamt fulltrúum hinna flokkanna, sem standa að ríkisstj., hafi farið út vegna ákvörðunar stj. sjálfrar, en hvorki vegna kvaðningar og allra sízt skipunar erlendra aðila. En þm. má álykta öfugt við orð mín. Það eru rökin, sem hann telur sig þurfa að nota í sínum málflutningi og fyrir sínum málstað.