17.11.1948
Sameinað þing: 17. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2091 í B-deild Alþingistíðinda. (2964)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Skúli Guðmundsson:

Ég sé ástæðu til að gera aths. við dagskrá þessa fundar. Það er gert ráð fyrir því að taka fyrir 29. og 33. mál, en 24. og 25. mál hafa eigi enn verið tekin fyrir, og er þetta í annað sinn, sem þau eru látin bíða. Nú vil ég leyfa mér að skora á hæstv. forseta að taka 24. og 25. mál þegar fyrir til fyrri umr. á næsta fundi.