19.11.1948
Sameinað þing: 19. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2094 í B-deild Alþingistíðinda. (2973)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Forseti (JPálm) :

Það er ekki ástæða til að ræða það, sem hv. þm. Borgf. sagði. Það var byggt á fullkomnum útúrsnúningi á meiningu minni. Það hefur verið talið réttara að flýta frv. fremur en þáltill., en ég hef legið undir ámæli fyrir að taka of mikið tillit til þáltill. — Þetta verður ekki rætt meira.