13.05.1949
Neðri deild: 108. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2100 í B-deild Alþingistíðinda. (2995)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd allshn. taka það fram, að frv. um opinbera aðstoð við byggingu íbúðarhúsa hefur ekki komið til n., svo að ég muni, en hitt málið, um stóríbúðaskattinn, hefur verið tekið fyrir í allshn., en var síðan sent bæjarráði til umsagnar, en sú umsögn var ekki komin á síðasta fundi nefndarinnar. Væntanlega liggur þessi umsögn fyrir á næsta fundi nefndarinnar, en þótt svo verði ekki, þá mun málið verða tekið fyrir. Mér þótti rétt að láta þetta koma fram að gefnu tilefni.