13.05.1949
Neðri deild: 108. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2100 í B-deild Alþingistíðinda. (2996)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það má vera, að málið um opinbera aðstoð við byggingu íbúðarhúsa hafi verið sent til heilbr.- og félmn. En hvað sem um það er, þá vænti ég, að þessi mál verði afgreidd frá þeim nefndum, sem um þau fjalla, sem fyrst og tekin til afgreiðslu í deildinni.