04.05.1949
Neðri deild: 98. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (3037)

120. mál, menntaskólar

Frsm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forseta, hverju það sætir, að síðasta dagskrármálið er tekið af dagskrá. Og ég vildi beina þeim tilmælum til hæstv. forseta f.h. meiri hl. menntmn., að hann reyndi að hraða því máli.