04.05.1949
Neðri deild: 98. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (3039)

120. mál, menntaskólar

Frsm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Ég skal ekki deila á forseta fyrir þetta, úr því að menntmrh. er veikur. En ég vil benda á, að þessu máli hefur einu sinni verið frestað áður, að því er forseti sagði mér fyrir beiðni eins nm. í menntmn. Ég skal ekki átelja það, en vildi mælast til þess við forseta að ýta heldur undir málið.