18.12.1948
Neðri deild: 45. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í B-deild Alþingistíðinda. (312)
107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Hér leggur forsrh. fram frv. og fer fram á, að það verði látið ganga í gegn í einum hvelli. Þegar fundur er búinn við 1. umr. kl. 3 um nótt og frv. fer í nefnd, þá má ekki bíða eftir áliti minni hl. n., heldur er hver venja þverbrotin og allur andi þingskapa. Ég sem frsm. minni hl. leyfi mér að mótmæla þessum aðferðum. Í gær létum við í minni hl. fara 3 mál í gegn umræðulaust, en hver er svo afleiðingin. Jú, hún er sú, að hæstv. ríkisstj. treystir sér ekki til þess að afgreiða þetta mál eftir þingvenjum. Hæstv. forsrh. ætlar að láta hespa þessu hér fram, sem hann treystir sér þó ekki sjálfur til að fylgja eftir. Af hverju stafar þetta? Þetta stafar af því, að allur undirbúningurinn hefur verið svo hraksmánarlegur, að ríkisstj. treystir sér ekki til þess. Þm. er boðið að fella hverja brtt., sem nokkurt vit er í. Í gær er þeim boðið að fella það, sem meiri hluti fjhn. er látinn bera upp í dag. Það kemur í ljós, að annaðhvort hafa ráðh. ekki lesið eða ekki skilið frv., því að í því eru heilar gloppur, sem ganga í gegnum 1. og 2. umr. En hæstv. stjórnarlið er allt samþykkt þessu. Það kemur í ljós við lestur 20. gr., að þar hefur heil setning fallið úr. Hæstv. ríkisstj. hafði ekki séð það. En núna fyrst kemur þetta í ljós, og þá kemur leiðrétting. Hvers konar óskapagangur er þetta? Svo gengur forsrh. af fundi, svo að það er ekki hægt að tala við hann. Er ekki hægt að tala við stjórnarandstæðinga um þetta atriði, mér er spurn. Hvað er svo næst? Jú, í dag er svo komið með 5 millj. kr. útgjöld til viðbótar, veskú, takk! Hvers konar vinnubrögð eru þetta eiginlega? Mér er spurn. Og hvað er stj. eiginlega öll að gera? Ég hef gert það að kröfu minni, og þm. eiga kröfu á því, að forsrh. reyni að rækja starf sitt eins og sæmilegur embættismaður, en það verður ekki sagt um hann, því að hérna hefur hann lagt fram frv. eins og lélegur skrifstofumaður, svo að það verður að fara að leiðrétta það eftir 2. umr. Það eina af viti, sem komið hefur frá stj. í þessu máli, er það að það verði athugað, hvort ekki muni vera hægt að koma fleiri vörutegundum undir greinina um hrognin. En hvar er trygging fyrir því, að útvegurinn fari af stað? Ég las upp bréf frá útvegsmönnum, Landssambandi ísl. útvegsmanna, og ég býst við, að það bréf hafi orðið til þess, að stj. fór nú eitthvað að hugsa. En hvar er trygging fyrir því, að I. kafli komi nokkurn tíma að gagni? Hæstv. fjmrh. sagði það, að frv. gæti ekki skapað neina fullkomna lausn á vandamálum útvegsins, enda hafði enginn vænzt þess, að það væri hægt. En það, sem hægt var að vænta, var, að hægt væri að skapa bráðabirgðalausn. En það hefur bara ekki verið gert, það er ekki sköpuð bráðabirgðalausn með þessu frv., ef það verður að l. Í I. kafla er engin trygging fyrir því, að bátaflotinn fari af stað. [Frh.] – [Fundarhlé.].