29.04.1949
Neðri deild: 95. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2162 í B-deild Alþingistíðinda. (3194)

Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni

Sigurður Kristjánsson:

Hv. þm. G-K. hefur farið fram á það við flokksmenn sína, að þeir samþykktu þessa málshöfðunarbeiðni, en ég segi eins og verzlunarmaðurinn hjá „Sameinaða“ sagði forðum, þegar hann var beðinn að flagga við skipskomu: „Allt vil ég gera fyrir þig, Ziemsen minn, nema draga upp dönsku duluna“, og segi ég því nei við þessari beiðni.