20.12.1948
Sameinað þing: 29. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2168 í B-deild Alþingistíðinda. (3221)

Þingfrestun

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér — og ég veit, að ég geri það fyrir hönd allra þingmanna — að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð, og leyfi mér fyrir hönd okkar þm. að óska honum gleðilegra jóla nú, þegar hann fer heim, og hans fjölskyldu. Og eins óska ég hæstv. samforsetum hans, sem við höfum ekki haft tækifæri til að kveðja nú, gleðilegra jóla. Ég þakka hæstv. forseta fyrir það samstarf, sem við höfum haft við hann, það sem af er þinginu, og vona, að við sjáumst aftur á næsta ári.

Ég bið hv. þm. að taka undir þessar óskir mínar. - [Þingmenn risu úr sætum.]