03.03.1949
Neðri deild: 74. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (3359)

49. mál, dýrtíðarráðstafanir

Ásgeir Ásgeirsson:

Herra forseti. Þessi mál hafa legið nokkuð lengi hjá n., en hún hefur fyrir löngu síðan átt tal við hæstv. ríkisstj. um þetta. Ríkisstj. hefur tjáð okkur, að hún hafi til meðferðar breytingar á reglum um innflutning. Nú hefur staðið nokkuð á því, að ríkisstj. skilaði sínum till. í hendur n. N. hefur fengið þær upplýsingar, að till., sem viðskmrh. hefur samið um þessi efni, liggi hjá öðrum ráðh. til athugunar. Meiri hl. n. hefur ekki hugsað sér að gera neinar till. fyrr en n. fær skýrslu ríkisstj. um það, hvernig málið stendur hjá henni og hvaða till. hún gerir.