03.03.1949
Neðri deild: 74. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (3360)

49. mál, dýrtíðarráðstafanir

Hermann Guðmundsson:

Út af þessari skýrslu hv. form. fjhn. vil ég segja það, að sá dráttur, sem á þessu hefur orðið, er alveg óverjandi og frekari dráttur gerir málið enn verra. Annars var mér ekki ljóst, hvort hv. form. n. var að gefa skýrslu um það mál, sem ég var að tala um, eða annað mál, því að hann ræddi um reglur um innflutning, en ég um frv. til l. um breyt. á dýrtíðarl.