18.12.1948
Efri deild: 42. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Ég hefði viljað stuðla að því, að þetta mál kæmist til n., en þar sem hv. þm. Barð. hefur gert nokkrar fyrirspurnir til mín, en ég hef ekki haft tíma til að svara enn þá og þessar fyrirspurnir eru þess eðlis, að ég þarf að fá tíma til þess að hugsa um þær, þá vil ég spyrja hv. þm. að því, hvort hann geri sig ekki ánægðan með, að ég svari honum ekki fyrr en við 2. umr. málsins. (GJ: Jú, og þó að það verði ekki fyrr en við 3. umr.)