08.04.1949
Neðri deild: 88. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í C-deild Alþingistíðinda. (3572)

34. mál, fjárhagsráð

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef borið fram ósk til hæstv, forseta um það, að frv. til l. um breyt. á l. um fjárhagsráð á þskj. 37 yrði tekið hér til 2. umr. í hv. d. Málið hefur ekki verið tekið á dagskrá enn þá, og er ekki sýnt, að það verði í dag. Vil ég því ítreka þá ósk mína til hæstv. forseta, að hann sjái sér fært að taka þetta mál á dagskrá næsta fundar í hv. Nd.