19.12.1948
Efri deild: 43. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (361)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Aðeins stutt athugasemd út af fullyrðingum 4. landsk., að útvegsmenn fái ekki gjaldeyri til sinna þarfa. Sannleikurinn í málinu er sá, að auk nauðsynlegs gjaldeyris til útvegsins hefur Landssambandið fengið 300 þús. kr. í gjaldeyri til ráðstöfunar, og ætti 4. landsk. að vera þetta ljóst.