28.01.1949
Neðri deild: 54. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í C-deild Alþingistíðinda. (3625)

44. mál, jeppabifreiðar

Ásgeir Ásgeirsson:

Í tilefni af því, sem flm. sagði um innflutningsleyfi, sem Alþ. hafi veitt, þá vil ég taka fram, að mér er ekki kunnugt um þau leyfi. Bæði vegamálaskrifstofan og vitamálaskrifstofan verða að sækja um innflutnings- og gjaldeyrisleyfi til viðkomandi stofnana, svo að dæmi séu nefnd.

Ég vil svo taka undir þau orð, sem hæstv. viðskmrh. viðhafði, að heppilegasta lausnin á þessu máli sé að vísa því til ríkisstj., og geri ég ráð fyrir, að flm. geti vel unað við þá lausn.