08.11.1948
Neðri deild: 11. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í C-deild Alþingistíðinda. (3880)
38. mál, útrýming minka
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Ég held, að hv. 1. þm. Árn. hafi misskilið það, er ég minntist á refina, að ég teldi, að vegna þess að við hefðum þurft að eiga í höggi við þá, væri ástæða til að bæta þar annarri plágu ofan á. Ég vildi aðeins sýna, hve erfitt hefur reynzt að útrýma refunum, ekki af því, að þeir hlaupi hér á land af ísum, heldur hefur það reynzt ógerlegt í landinu sjálfu. Ég nefndi þetta aðeins til þess að sýna líkurnar fyrir því, hve erfitt muni verða að útrýma villiminkunum, og verði kannske aldrei hægt, þótt hins vegar sé rétt að vinna að því eins og unnt er. Ég tel aðeins ekki ráðlegt að útrýma þeim stofni, sem í búrum er geymdur, en sitja svo áfram með sjálfa pláguna. Það á að byrja á að herja á villiminkana. Í hina er alltaf hægt að ná, ef útrýmingu villiminkanna væri talið það langt á veg komið, að aðalhættan stafaði af búrunum. — Ég veit, að þetta verður rætt í n., en vildi aðeins segja hér á þessu mína skoðun.