14.12.1948
Neðri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í C-deild Alþingistíðinda. (3883)

38. mál, útrýming minka

Steingrímur Steinþórsson:

Út af fsp. hv. 1. þm. Árn. vil ég geta þess, að þetta frv. er til meðferðar í n. og mun koma fram á sínum tíma, en veit ekki, hvenær það verður, því að það eru fjölda mörg mál í n., sem eru komin miklu fyrr fram, en þetta mál. N. hefur sent frv. mörgum aðilum til umsagnar og mun koma með það á sinum tíma, en n. getur engu lofað.