09.11.1948
Neðri deild: 12. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í C-deild Alþingistíðinda. (3906)

39. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Ólafur Thors:

Ég sagði aldrei, að þessi hv. þm. væri með mikil ræðuhöld, heldur að hann væri leiðinlegur og mér þætti hann leiðinlegur. Ef hann talar ekki eins mikið og mér finnst, þá er það af því, að mér finnast ræður hans leiðinlegri en annarra.