26.11.1948
Neðri deild: 23. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í C-deild Alþingistíðinda. (3924)

69. mál, verbúðir

Flm. (Hermann Guðmundsson):

Herra forseti.

Þetta frv. er ekki nýtt, það var flutt hér einnig í fyrra og var þá vísað til nefndar, en kom ekki þaðan aftur. Er því ástæða til að flytja það á ný, þar sem engin breyting hefur orðið í þessum efnum síðan í fyrra. Frv. er flutt vegna ófremdarástands þess, sem ríkir í verstöðvum í þessum efnum, bæði fyrir aðkomusjómenn og aðra, sem þar vinna. Mér þykir ekki ástæða til að ræða mál þetta nánar,þar eð það er hv. þm. að nokkru kunnugt. Ég vildi leggja til, að því yrði vísað til sjútvn. að umræðu lokinni.