24.01.1949
Neðri deild: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í C-deild Alþingistíðinda. (4019)

108. mál, Framfarasjóður búnaðarsambanda

Sigurður Kristjánsson:

Það er eingöngu út af því, að talað er um, að þetta frv. fari til landbn., að ég kvaddi mér hljóðs. Ég tel frv. hvergi eiga heima nema hjá fjhn., því að það er að sjálfsögðu fjárhagshlið málsins, sem þingið þarf að rannsaka. Hitt þarf ekki að deila um, að landbn. mun finna ástæðu til þess að óska eftir fé í þetta, en það, sem snýr að Alþ., er fjárhagshlið málsins, og þess vegna á þessi hv. d. að láta fjhn. rannsaka málið. Ég legg því til, að málið fari til fjhn.