18.02.1949
Neðri deild: 67. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (4046)

132. mál, kirkjugarðar

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég minnist þess ekki, að n. hafi athugað þessa hlið málsins, áður en hún lagði frv. fram, eða milli 1. og 2. umr. Hins vegar tel ég sjálfsagt að verða við ósk hv. 6. þm. Reykv., en ég tel hættulaust að ljúka þessari umr. nú, en legg það í vald forseta.