01.02.1949
Efri deild: 52. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (415)

2. mál, síldarbræðsluskip

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Ég hef af sérstökum ástæðum ekki getað verið við umræður þessa máls fyrr en rétt í þessu og veit því ekki sem bezt, hvað hér hefur komið fram. Ég vildi samt aðeins, áður en gengið er til atkvæðagreiðslu, undirstrika nál. okkar í meiri hl. Meðmæli okkar byggjast á því, að ekki er fært að ónýta þær ráðstafanir, sem þegar hafa verið gerðar og mikið fé hefur verið lagt í og Alþ. stendur á bak við, á því byggist atkv. mitt. Og þó að ég greiði atkv. með frv., þá tel ég mig ekki taka á mig nokkra ábyrgð af þessu.