11.05.1949
Efri deild: 103. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 604 í C-deild Alþingistíðinda. (4265)

199. mál, orlof

Gísli Jónsson :

Herra forseti. Fyrir alllöngu var vísað til hv. fjhn. frv., sem ég bar fram á þskj. 594 um breyt. á orlofsl. Með því að afgreiðsla þessa máls gæti haft veruleg áhrif á útgjöld fjárl., vænti ég þess, að n. skili áliti og að hæstv. forseti krefji form. n. um afgreiðslu málsins, enda var því beint lofað, að málið yrði ekki svæft, heldur fengi afgreiðslu.