26.01.1949
Sameinað þing: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í D-deild Alþingistíðinda. (4356)
22. mál, landbúnaðarvélar
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Eins og skýrt var frá í gær, er fjárhagsráð búið að semja innflutningsáætlun sína, en ríkisstj. á eftir að leggja síðustu hönd á hana. Það er rétt, að þar er gert ráð fyrir að flytja inn landbúnaðarvélar fyrir 10 millj. kr. Minni hluti ráðsins hefur þó gert till. um hækkun á þessari upphæð og eins um að auka jeppainnflutning frá því, sem gert er ráð fyrir í áætluninni, og jafnframt hefur sami minni hluti gert till. til lækkunar á öðrum innflutningsliðum til mótvægis, og verður gengið frá þessum ágreiningi í stjórninni.
Hér hafa komið fram raddir um það, að þessi áætlun verði lögð fyrir Alþ. Ég er nú ekki viss um, að það bætti nokkuð vinnubrögð Alþ. að gera það að eins konar innflutningsnefnd. Hitt væri ekki nema gott, að þm. kynntust þessari áætlun svo fljótt sem unnt er, og ekki tilgangslaust, að þessi mál væru rædd hér í stórum dráttum, þó að aðrir aðilar verði að leiða þau til lykta.
Ég tel, að viljayfirlýsing Alþ. sé góð og gild og að hana beri að taka alvarlega og framkvæma, eftir því sem tök eru á. Ég tel, að ríkisstj. verði að gera sitt ýtrasta til að framkvæma yfirlýstan vilja Alþ., og ef þessi till. nær samþykki, er hún greinileg yfirlýsing Alþ., sem ríkisstj. er rétt og skylt að framkvæma, eftir því sem tök eru á.