02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í D-deild Alþingistíðinda. (4367)

22. mál, landbúnaðarvélar

Forseti (JPálm.):

Út af aðfinnslum hv. 2. þm. Reykv. viðvíkjandi því, að ég hefði ekki fund seinni partinn í dag, heldur í kvöld, þykir mér rétt að taka fram, að það var vegna þess, að það er venjulegur flokksfundartími. Og sá flokksfundur, sem nú er haldinn, mun hafa verið boðaður löngu eftir að ég ákvað að halda þingfund. Varðandi þennan fund virðist það ekki gera mikið til, því að við síðari umr. þessa máls er búið að halda 12 ræður og margar þeirra langar, — og þetta er till., sem n. er sammála um. Þær löngu umr., sem farið er að viðhafa um einstakar þáltill., ganga langt úr hófi fram, svo að þess vegna er alveg óhætt, þó að fáir séu við til að halda þessum umr. áfram og ljúka umr. málsins.