23.02.1949
Sameinað þing: 42. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (4383)

33. mál, stjórn stærri kauptúna

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Ég sé, að frsm. málsins, 2. þm. Skagf., er ekki viðstaddur, en býst við, að það komi ekki að sök, því að málið þarf ekki langa framsöguræðu. N. varð sammála um að mæla með, að frv. yrði samþ., svo að endurskoðun á þessum málum geti farið fram, því að þörfin fyrir hana er orðin mjög brýn. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál, en vænti, að Alþ. samþ. till.