29.03.1949
Sameinað þing: 58. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í D-deild Alþingistíðinda. (4413)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Forseti (JPálm):

Það er síður en svo, að mér detti í hug að taka málfrelsi af hv. þm. eða sýna þeim óréttlæti, og það án tillits til þess, hvaða flokkur á í hlut. En hér hafði hv. form. þess flokks, sem er hér í andstöðu, flutt ræðu í fjóra klukkutíma, og ég geri ráð fyrir, að þar hafi komið fram öll þau helztu rök, sem fram koma móti þessu máli. Og auk þess hefur hver hv. þm. rétt til sinna tveggja ræðna, og með 15 mínútna ræðutíma er síður en svo, að neinni harðdrægni sé beitt í þessu efni.