18.05.1949
Sameinað þing: 76. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í D-deild Alþingistíðinda. (4553)

211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna

Forseti (JPálm.):

Mér hefur borizt till. frá hv. 4. landsk. þm. og hv. 2. þm. Reykv., og hefur 4. landsk. þm. lýst henni. Þar sem till. er skrifleg og þar að auki of seint fram komin, þarf afbrigði til þess að hún verði tekin fyrir. Ég vil því spyrja hv. þm., hvort þeir vilji veita afbrigði.