18.05.1949
Sameinað þing: 76. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í D-deild Alþingistíðinda. (4560)

211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna

Sigurður Kristjánsson:

Ég held, að það sé alveg einstakur atburður á Alþingi Íslendinga, að flm. till. sé neitað um að tala um hana. Ég hef beðið um orðið til þess að tala fyrir minni eigin till., en hæstv. forseti tekur sér það vald að neita mér um orðið. Að sjálfsögðu beygi ég mig undir vald forseta, því að hann hefur að sönnu vald til þess að taka af mér orðið, þó að það sé gersamlega móti þingsköpum.