18.05.1949
Sameinað þing: 78. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í D-deild Alþingistíðinda. (4585)

211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna

Gísli Jónsson:

Eftir því, sem fram hefur komið við umr. og atkvgr., eru þrír hæstv. ráðh. — og þar á meðal hæstv. fjmrh. — andvígir þáltill., enn fremur meiri hluti fjvn. og meiri hluti þeirra 37, þm., sem greiddu nýlega atkv. á móti vantrausti á hæstv. ríkisstj. Með tilvísun til þessa geri ég ráð fyrir því, að hæstv. fjmrh. noti ekki heimildina, þótt þáltill. verði samþ. Ég segi nei.