18.05.1949
Sameinað þing: 78. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (4589)

211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna

Steingrímur Steinþórsson:

Það mun vera einsdæmi á Alþingi og endemi í alla staði, að slík útgjaldatill. sem þessi komi fram næsta dag eftir að fjárlög eru afgr., eins og það var erfitt, Og þar sem vitað er, að erfitt verður að greiða lögboðnar greiðslur, þá álit ég það vera vanvirðu fyrir Alþingi að samþ. till. sem þessa og segi nei.