30.11.1948
Neðri deild: 25. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (462)

36. mál, útflutningur og innflutningur á íslenskum og erlendum gjaldeyri

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Þetta frv. er upphaflega gefið út sem brbl. til þess að gera kleift að framfylgja þeim reglum, sem settar voru um erlendan gjaldeyri ferðamanna. Þessar reglur voru settar eftir ósk tollstjóra og bankanna. Leggur n. til í einu hljóði, að frv. verði samþ.