22.04.1949
Sameinað þing: 67. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í D-deild Alþingistíðinda. (4865)

121. mál, ríkishlutun um atvinnurekstur

flm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Í sambandi við till. á þskj. 310 vildi ég spyrja, hvort ekki sé ráðgerður fundur í Sþ. fyrr, en á venjulegum tíma í næstu viku. Till. hefur nú legið fyrir í sjö vikur og langt liðið milli umr. Að vísu hafa verið ástæður til þessa upp á síðkastið, en mér finnst erfiðlega horfa, er bornar eru á mig sakir af hæstv. viðskmrh. og ekki er hægt að svara, fyrr en eftir viku.