17.11.1948
Sameinað þing: 17. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í D-deild Alþingistíðinda. (5074)

908. mál, lýsisherzluverksmiðja

Forseti (JPálm.) :

Út af þessari athugasemd vil ég taka það fram, að forseti hefur það ekki á valdi sínu, hve umræður kunna að teygjast, því að ráðh. hafa ótakmarkaðan ræðutíma.

Ég hefði gjarnan viljað ljúka við þær fyrirspurnir nú, sem eru á dagskrá, en það hafa verið ákveðnir flokksfundir og af þeim sökum er ekki hægt að halda þingfundi áfram. Þær fyrirspurnir, sem eftir er að ræða, 2.–6. á þskj. 88, eru því teknar út af dagskrá, en þær verða aftur teknar á dagskrá á venjulegum fundartíma á morgun.